Tímalína hússins

Vordugata

Blásið til samkeppni um kennileitishús

Árið 2020 var blásið til keppni um kennileitishús við Vörðugötu. Forvaldar voru níu arkitektastofur til þess að mynda teymi arkitekta og byggingaraðila. Bæði Krads og Trípólí fengu boð um að taka þátt í keppninni og þar sem þessar tvær stofur deila skrifstofurými ákváðu þeir Kristján og Andri að setja saman teymi til þess að taka þátt. Þeir fá svo til liðs við sig listamanninn Egil Sæbjörnsson og byggingaverktakann Jens Sandholt.

Vordugata

Sigurtilaga Krads og Trípólí

Í júlí 2021 tilkynnir dómnefndin að sigurvegarar samkeppninnar séu Krads og Trípólí. Sigurtillagan er langur byggingarmassi sem er með mynstraðri steypu og mjög afgerandi litaskiptingu. Áframhaldandi þróun fór hins vegar fram þar sem stjórnendur samkeppninnar vildu ná því að setja húsið inn í form vörðu samanber nafn götunnar; Vörðugata. Úr varð að Kristján og Andri settu húsið inn í þríhyrning og við það varð til miðjurými með stórum þakglugga og einstaklega fallegum stigum.

Vordugata

Húsið fær endanlegt útlit

Lokaútlit hússins er hannað og farið er í mikla rannsóknarvinnu á því hvernig væri best að vinna að listaverkinu á húsinu. Fundinn var aðili í Þýskalandi sem gat framleitt mottur til þess að steypa listaverkið á húsið.

Vordugata

Framkvæmdir byrja

Eftir að jarðvinnu var lokið byrjuðu framkvæmdir við húsið með því að 17. júní 2024 voru steypt svokölluð þrifalög en í því felst að steypt er undir undirstöður hússins.

Vordugata

Fyrsta hæð steypt

Þann 12. júní 2025 var fyrsta hæðin steypt en það er gjarnan stór áfangi fyrir framkvæmdaraðila.

Vordugata

Þakið steypt

Þann 20. apríl 2026 var þakið steypt.

 

Vordugata

Rammi þakgluggans settur í

Eitt af einkennum hússins verður glæsilegur þakgluggi yfir stigahúsinu. Þann 8. maí 2026 var ramminn settur í og þarna sést þegar verið er að sjóða hann fastan.

 

Vordugata

Húsið á Hönnunarmars

Húsið var til sýnis á Hönnunarmars og hér má sjá bregða fyrir arkitektum hússins þar sem þeir segja frá hönnun þess.

Vordugata

Glerjun hafin

Það eru ófá handtökin við að glerja húsið og var byrjað á því í maí 2026.

 

Vordugata

Prufur málaðar

Í byrjun júní voru málaðar prufur af litum á steypta fleka þar sem mynstrið sem er á húsinu er til staðar. Til þess að listin og húsið njóti sín sem best er mikilvægt að finna rétta litinn.