Vordugata

VERKEFNIÐ

Samkeppni um hönnun

Blásið var til samkeppni árið 2021 um hönnun á kennileitishúsi við Vörðugötu í Urriðaholti og voru níu arkitektastofur valdar í forvali til þess að taka þátt og mynda teymi arkitekta og byggingaraðila. Bæði Trípolí og Krads arkitektastofur voru valdar í forvalinu og úr varð að Andri hjá Trípólí og Kristján hjá Krads mynduðu teymi ásamt byggingarverktakanum Jens Sandholt hjá JE Skjanna ehf.

Að forvalinu loknu náði teymið þeirra að halda áfram ásamt tveimur öðrum arkitektastofum.

Í umsögn dómnefndar sagði eftirfarandi um sigurtillögu Trípólí og Krads: „Tillagan er skýr, trúverðug og vönduð, með afgerandi heildaryfirbragði, þar sem ætluðu hlutverki byggingarinnar sem kennileitisbyggingar er tekið alvarlega með metnaðarfullri lausn.“

 

 

 

Vordugata

Sigurtillaga aðlöguð að deiliskipulagi

Langur byggingarmassi brotinn inn í þríhyrning

Ferillinn að endanlegu útliti hússins var lengi í mótun en þegar allt kom til alls var komin mynd af byggingu sem sannarlega skæri sig úr í Urriðaholtinu.

Sigurtillaga Trípólí og Krads var allt annar byggingarmassi, mun lengra hús en þeir voru beðnir um að aðlaga form hússins að hugmyndinni um Vörðu þannig að byggingarmassinn var tekinn og brotinn inn í þríhyrning.

Vordugata

HÖNNUN

Listamaður fenginn til liðs

Til þess að húsið byggi yfir sérstöðu og skæri sig út úr umhverfinu var fenginn í teymið listamaðurinn Egill Sæbjörnsson og sá hann um að hanna veggskreytingarnar sem gefa húsinu einstakan svip og áferð.

Arkitektarnir vildu hafa húsið steypt og að steypan væri munstruð. Egill bjó til mynstur sem er steypt í bæði súlur og flata fleti hússins. Hér skoðar Egill súlu í sökkli hússins.




Meira en bara hús

Einstök hönnun og útlit

Húsið er á margan hátt ólíkt öllum öðrum húsum, þetta þríhyrningslaga punkthús með glæsilegu stigahúsi, skreyttu að utan og fallegri litapallettu sem rímar við haustið í Heiðmörk.

Vordugata

Hús í sérstöku formi

Húsið er þríhyrningslaga og situr við jaðar Heiðmerkur. Í bílakjallara er stór hluti íbúða með einkastæði en jafnframt eru stæði við húsið.

Vordugata

Flókið yfirborð

Fasaða byggingarinnar er skreytt með mynstri sem listamaðurinn Egill Sæbjörnsson hannaði en jafnframt ganga svalirnar út sem gefur útliti hússins uppbrot og áhugavert útlit.

Vordugata

Náttúran í bakgarðinum

Heiðmörkin er einstök náttúruparadís og var innblástur við val á litum á húsið. Þar eru jafnframt óteljandi útivistarmöguleikar fyrir fólk sem vill njóta náttúrunnar.