
Staðsetning hússins í Urriðaholtinu við Heiðmörkina gefur ekki einungis möguleika á því að ganga beint út í náttúruna heldur eru þrír golfvellir í næsta nágrenni. Urriðavöllur er uppi á holtinu og tekur einungis korter að ganga að honum. Þá eru tveir aðrir vellir nærri og eru það Vífilsstaðavöllur og fyrir aftan Ikea er Setbergsvöllur.
Hinum megin við holtið er svo Urriðavatn og frá húsinu sést að Vífilsstaðavatni. Þá er stutt að skutlast að Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði og þar rétt hjá er eitt vinsælasta fjall á höfuðborgarsvæðinu til uppgöngu, Helgafellið.
Í næsta nágrenni eru síðan matvöruverslanir, Ikea og bílaumboð meðal annars.

Í Heiðmörkinni er net göngustíga í margbreytilegu landslagi. Það er hægt að njóta þess að ganga í skóginum í Vífilsstaðahlíð eða heimsækja Búrfellið þar sem gönguleiðin fer í gegnum úfið hraun.

Það verður stutt fyrir krakka á skólaaldri að stökkva yfir í skólann. Hinum megin í Urriðaholtinu er síðan leikskóli.
Þá er fjöldi verslana nærri, Bónus, Costco, Ikea og Ilva svo einhverjar séu nefndar. Einnig bílaumboð og gæludýraverslun.