Ferillinn að endanlegu húsi var langur en skemmtilegur en við hverja áskorun voru arkitektarnir og Jens, framkvæmdaraðilinn, sammála um að verkefnið varð betra. Það urðu miklar breytingar á því húsi sem varð hlutskarpast að mati dómnefndar og var það brotið upp og sett í þríhyrnt form til þess að húsið félli inn í deiliskipulagið.
Egill Sæbjörnsson mætti á verkstað og fylgdist með því þegar tekið var utan af steyptri súlu með mynstri eftir hann. Hann var að vonum kátur eins og fram kemur hér í vídeóinu:
Það eru ófá handtökin við að byggja hús. Jón Ebbi er verkstjóri við framkvæmdirnar á Vörðugötu og við heimsóttum framkvæmdastaðinn síðasta sumar þegar verið var að steypa fyrstu hæðina af húsinu. Húsið er á margan hátt sérstakt þar sem það er lítið um 90 gráðu horn og svo þarf að steypa marga fleti sem eru með skrauti. Sjáðu hér til hliðar hvað Jón segir um þetta.
Sérstaða byggingarinnar liggur í efnum, áferðum og yfirbragði sem er um margt ólíkt stórum hluta húsanna á holtinu þar sem álklæðningar eru í forgrunni. Form úthliða er allt í senn, einföld, endurtekin, uppbrotin, munstruð og skreytt.
Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður hannaði yfirborð fyrir bygginguna sem hann hefur gefið nafnið „flókið yfirborð“. Yfirborðið er aldrei eins og gefur þeim sem umgangast bygginguna áhugavert og nærandi umhverfi. Hér fjallar Egill um yfirborð hússins.

Á Hönnunarmars sögðu arkitektar hússins frá hönnun þess og hér fyrir neðan eru myndir frá þeim atburði sem Claudio Parada Nunes tók.
























